“HJARTAVERKUR STEÐJA VANN”

Birigir Dýrfjörð skrifar

Á föstudaginn langa fyrir hálfri öld eða svo var ég lagður inn á Borgarspítalann, ástæðan var ætlað hjartaáfall. Ég hafði verið að vinna heima við erfiðar smíðar og var þyrstur og lagaði mér kakó í stóra könnu og þambaði. Eftir einhvern tíma fékk ég nístingssáran verk í brjóstið. Konan sem á mig sá að eitthvað var að og spurði, ég sagðist hafa sáran verk í bringunni.

Henni brá og sagði ég hringi í lækni ég aftók það og sagði; við skulu sjá “þetta líður áreiðanlega hjá”.

Birgir mannstu hvernig fór fyrir vini okkar. Þar var hún að vísa til vinar okkar sem fann fyrir sárum verk í brjósti og ákvað að bíða með að fara í vinnuna, konan hans vildi hringja í lækni, en hann svaraði eins og ég, “þetta líður áreiðanlega hjá”,- hann dó seinnipart dagsins. Mín frú hringdi þó ég væri fúll.

Eftir skamma stund var læknir mættur. Hann spurði mig nokkurra spurninga og síðan hvort við hefðum síma (þetta var fyrir tíma gemsanna) Hann hringdi stutt símtal, kom svo til baka og sagði, það er að koma sjúkrabíll. Bíllinn kom og tveir vaskir nenn með flotta sjúkrakörfu þeir margskipuðu mér að leggjast í hana ég harðneitaði. Loks sagði ég, “Strákar það má ekki espa fólk með hjartaáfall” og labbaði út í bílinn.

Eins og fram hefur komið var þetta á föstudaginn langa og enginn læknir og ekki á laugardag eða Páskadag eða annan í páskum. Á miðvikudegi kom úrskuður um hvað væri að, ég fékk fékk þá lánuð ritföng og bjó til passíusálm.

Passíusálmur No 53

Hjartaverkur steðja vann
víst að mér þá fastan rann.
Með Herranum ég Himinfar
hélt ópantað fengi þar.

Þá mig kvölin tekur þjá
þar doktor einn er staddur hjá.
Fauskur sá því fresta réð
að festa mig upp í himintréð.

Eftir snoðið símatal
sendi hann mig á hospítal,
Átti skjótt að finna út
er ylli mínum hjartasút.

Monitor meður og tískutól
tengdur fyrr en haninn gól.
Þétt var rýnt í þvag og blóð
þetta í raportinu stóð.

Yfirvegað hér úrskurðast
eftirfarandi um hjartakast.
Á réttum tíma en röngum stað
reyndist vindsperringur það.

(Ps: no.51. Gvuðmund. Jaka.)

(Ps: no.52. Á valhúsahæð disk.m/ Ellen Krist.)


Posted

in

by

Tags: